Grunnnámskeið

PADI Open Water

Dýpi18 m
Lengd5 kafanir á 2–3 dögum
ForkröfurEngin reynsla
Verð145.000 kr.

PADI Open Water skírteini gefur þér réttindi til að kafa með köfunarfélaga niður á 18 metra dýpi. Við kennum einstaklingsmiðað: markmiðið er að allir nái góðri tækni og líði vel í vatninu.

Hvað getur þú gert?

  • Leigt köfunarbúnað og fengið áfyllingu á kúta, hvar sem er í heiminum
  • Skipulagt köfun með köfunarfélaga
  • Tekið þátt í ferðum Sportkafarafélags Íslands (ef þú gengur í félagið)
  • Farið í köfunarferðir til útlanda
  • Haldið áfram á Advanced Open Water og PADI Specialty námskeið
  • Orðið hluti af PADI, stærsta samfélagi kafara í heimi

Innifalið

  • PADI eLearning heimanám
  • Kennsla í laug og í sjó eða vatni
  • Allur köfunarbúnaður á meðan á námskeiðinu stendur
  • PADI skírteini

Ekki innifalið

  • Akstur á köfunarstað (5.000 kr.)

Svona fer námskeiðið fram

  1. Heimanám á netinu á þínum hraða
  2. Laugartímar: grunnfærni í öruggu umhverfi
  3. Köfur í sjó eða vatni með kennara
  4. Þú færð skírteinið og getur kafað um allan heim

Forkröfur

  • Kunna að synda og líða vel í vatni
  • Vera í góðu líkamlegu formi
  • Læknisvottorð

Viltu kafa í Silfru eða prófa fríköfun?

Systurfyrirtækin okkar sjá um ferðir og fríköfun. Sama fólkið, sami búnaðurinn.

WhatsApp