Marbendill

Skilmálar

1. Almennt

Marbendill köfunarskóli er rekinn af Freedive Iceland ehf., kt. 650418-1070, VSK nr. 131365, Brúarfljót 3, 271 Mosfellsbæ. Netfang: info@marbendill.is, sími 626 5200. Um viðskipti gilda íslensk lög.

2. Skráning og greiðsla

Engin netbókun er á vefnum. Þú sendir fyrirspurn og við finnum saman tíma sem hentar. Námskeið er greitt við skráningu, annaðhvort með greiðsluhlekk sem við sendum eða með millifærslu. Skráning er staðfest þegar greiðsla hefur borist. Verð á vefnum eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti.

3. Afbókun og endurgreiðsla

Námskeiðsgjald er ekki endurgreitt ef nemandi mætir ekki á umsömdum tíma eða ákveður að ljúka ekki námskeiði. Ef við þurfum að fresta námskeiði vegna veðurs eða aðstæðna finnum við nýjan tíma með þér.

4. Hvað er innifalið

Það sem er innifalið í hverju námskeiði kemur fram á síðu námskeiðsins. Akstur á köfunarstað er ekki innifalinn (5.000 kr.). Búnaður er innifalinn á PADI Open Water og á þurrgallanámskeiði ef þarf, en ekki á öðrum námskeiðum.

5. Heilsa

Nemendur koma með læknisvottorð fyrir námskeið. Önnur eyðublöð eru fyllt út hjá okkur. Heilsufarsupplýsingar eru trúnaðarmál og aðeins kennarar hafa aðgang að þeim.

6. Persónuupplýsingar

Við notum nafn, netfang, síma og aðrar upplýsingar sem þú gefur okkur aðeins til að svara fyrirspurnum, skipuleggja námskeið og skrá PADI skírteini. Myndir sem sendar eru með viðgerðarfyrirspurn eru eingöngu notaðar til að meta viðgerðina. Við seljum aldrei persónuupplýsingar og deilum þeim ekki með öðrum en PADI vegna skírteina. Þú getur beðið um að upplýsingum um þig sé eytt með því að senda póst á info@marbendill.is.

7. Vafrakökur

Vefurinn notar nauðsynlegar vafrakökur og, ef þú samþykkir, vafrakökur til að mæla umferð á nafnlausan hátt. Þú getur hafnað þeim án þess að það hafi áhrif á notkun vefsins.

8. Myndir og efni

Myndir og texti á vefnum eru í eigu Marbendils eða ljósmyndara og má ekki nota án leyfis.

9. Breytingar

Við getum uppfært þessa skilmála. Nýjasta útgáfan er alltaf á þessari síðu.

WhatsApp