Þurrgallanámskeið

PADI Dry Suit

Dýpi—
Lengd1 dagur eða 2 dagpartar
ForkröfurOpen Water, 17 ára
Verð65.000 kr.

Með þurrgallaréttindum getur þú kafað í þurrgalla á Íslandi og í útlöndum. Námskeiðið hentar vel köfurum sem lærðu í heitum sjó erlendis. Mörgum finnst skemmtilegra að kafa hér við land en erlendis.

Hvað getur þú gert?

  • Leigt þurrgalla um allan heim
  • Kafað við Ísland allt árið
  • Haldið áfram á Advanced Open Water eða PADI Specialty námskeið

Innifalið

  • Tvær kafanir
  • Öll kennsla
  • PADI skírteini
  • Köfunarbúnaður á kennsludögum ef þarf

Ekki innifalið

  • Akstur á köfunarstað (5.000 kr.)

Svona fer námskeiðið fram

  1. Verkleg kennsla á þurrgallann og búnaðinn áður en farið er í vatn
  2. Köfun 1: flotjöfnun og stjórn á galla
  3. Köfun 2: full stjórn á flotjöfnun í galla
  4. Frágangur á búnaði

Á veturna getur þurft tvo daga vegna stuttrar dagsbirtu. Ekkert lesefni: kennarinn fer yfir allt á staðnum.

Forkröfur

  • PADI Open Water eða sambærilegt skírteini
  • 17 ára eða eldri
  • Vera í góðu líkamlegu formi
  • Kunna að synda og líða vel í vatni
  • Læknisvottorð
  • Ekki vera barnshafandi

Viltu kafa í Silfru eða prófa fríköfun?

Systurfyrirtækin okkar sjá um ferðir og fríköfun. Sama fólkið, sami búnaðurinn.

WhatsApp