Köfunarskóli fyrir alla sem búa á Íslandi
Marbendill er PADI 5 stjörnu köfunarmiðstöð og köfunarskóli Freedive Iceland ehf. fyrir íslenskan markað, í sama eigu og Dive Iceland. Við kennum í litlum hópum í köldu, tæru vatni, á íslensku og ensku.
Kennari
Birgir Skúlason (Biggi)
Biggi hefur kennt köfun og fríköfun síðan 2011. Hann var fyrsti Íslendingurinn til að fá fríköfunarréttindi og á íslensk met í fríköfun. Hann rekur einnig Dive Iceland og Freedive Iceland og er formaður AIDA Iceland. Mottó: Ekki reyna, gerðu það bara!
- PADI Scuba Instructor
- PADI Freediver Instructor Trainer
- AIDA Master Instructor · AIDA Instructor Trainer · AIDA Judge
- EFR Instructor Trainer
- Skipstjórnarréttindi
Skilmálar
Engin netbókun. Þú sendir fyrirspurn, við finnum tíma og þú greiðir við skráningu með greiðsluhlekk sem við sendum eða með millifærslu.
Námskeiðsgjald er ekki endurgreitt ef nemandi mætir ekki á umsömdum tíma eða ákveður að ljúka ekki námskeiði.
Gefðu köfunarnámskeið
Gjafabréf á köfunarnámskeið er gjöf sem gleymist ekki. Við útbúum gjafabréf á hvaða námskeið sem er eða fyrir ákveðna upphæð. Hafðu samband.








