PADI Open Water skírteini gefur þér réttindi til að kafa með köfunarfélaga niður á 18 metra dýpi. Við kennum einstaklingsmiðað: markmiðið er að allir nái góðri tækni og líði vel í vatninu.
Grunnnámskeið
PADI Open Water
Dýpi18 m
Lengd5 kafanir á 2–3 dögum
ForkröfurEngin reynsla
Verð145.000 kr.
Hvað getur þú gert?
- Leigt köfunarbúnað og fengið áfyllingu á kúta, hvar sem er í heiminum
- Skipulagt köfun með köfunarfélaga
- Tekið þátt í ferðum Sportkafarafélags Íslands (ef þú gengur í félagið)
- Farið í köfunarferðir til útlanda
- Haldið áfram á Advanced Open Water og PADI Specialty námskeið
- Orðið hluti af PADI, stærsta samfélagi kafara í heimi
Innifalið
- PADI eLearning heimanám
- Kennsla í laug og í sjó eða vatni
- Allur köfunarbúnaður á meðan á námskeiðinu stendur
- PADI skírteini
Ekki innifalið
- Akstur á köfunarstað (5.000 kr.)
Svona fer námskeiðið fram
- Heimanám á netinu á þínum hraða
- Laugartímar: grunnfærni í öruggu umhverfi
- Köfur í sjó eða vatni með kennara
- Þú færð skírteinið og getur kafað um allan heim
Forkröfur
- Kunna að synda og líða vel í vatni
- Vera í góðu líkamlegu formi
- Læknisvottorð
Næsta skref
PADI Dry Suit
Viltu kafa í Silfru eða prófa fríköfun?
Systurfyrirtækin okkar sjá um ferðir og fríköfun. Sama fólkið, sami búnaðurinn.