Fróðleikur / Búnaður
Búnaður · 22.1.2017

Umhirða O-hringja og slangna

Er búnaðurinn í lagi hjá þér?

Allur búnaður getur bilað. Umhirða búnaðar er mikilvæg. Með réttri umhirðu má koma í veg fyrir slys og að kafari þurfi að sitja af sér köfunina.

Slöngur

Allar slöngur geta byrjað að leka með tímanum.

Yfirfarið slöngur reglulega og skiptið þeim út áður en þær rifna.

Fyrsta vísbending um að skipta þurfi um slöngu er ef litlar loftbólur myndast í kafi á samskeytum slöngu og festingar.

O-hringir

O-hringir geta trosnað og gefið sig með tímanum. Þetta getur meðal annars gerst í vestisrananum og í gallaslöngunni. Þegar O-hringir slitna halda þeir ekki loftinu eins og ætlast er til og loft byrjar að fríflæða.

Fríflæði á búnaði, hvað er til ráða?

Ef loft byrjar að fríflæða inn í vestið í köfun missir kafarinn flotjafnvægið.

Kafari sem áttar sig á vandamálinu getur aftengt slönguna úr vestinu og notað gallann til að flotjafna.

Hann verður að muna að þegar komið er upp á yfirborð er ekkert loft tengt við vestið. Það þarf því að tengja slönguna aftur við vestið til að ná flotjöfnun, eða blása í vestið með munninum.

Kafari sem áttar sig ekki á vandamálinu verður í meiri eða minni vandræðum með flotjafnvægið alla köfunina og þarf að tæma vestið af lofti reglulega.

Á sama hátt getur fríflætt inn í gallann. Þar er líka hægt að kippa slöngunni úr og nota bara vestið til að flotjafna. Við slíkar aðstæður er best að loka ventlinum á gallanum þar til farið er upp.

Í báðum tilvikum er þó best að fara upp á yfirborð og enda köfunina.

O-hringur rifnar í flotvesti

O-hringur í flotvesti getur rifnað á yfirborði með hvelli. Þá streymir loftið úr vestinu og kafarinn byrjar að sökkva. Við þessu er lítið annað að gera en að setja lungað upp í sig og nota gallann til að stjórna því að sökkva ekki djúpt, eða losa sig við blý.

O-hringur getur líka rifnað í hvaða slöngu sem er sem fer í fyrsta stigið (þrýstijafnarann). Þá þarf að skrúfa í snatri fyrir kútinn. Hægt er að skipta um O-hring ef þetta gerist á landi, en gerist það neðansjávar þarf að reiða sig á varalunga félagans og koma sér upp á yfirborð.

Þegar komið er upp á yfirborð þarf að skola lungun, bæði fyrsta og annað stig, vel úr köldu vatni og láta þjónusta þau í framhaldinu. Við viljum ekki að saltkristallar myndist inni í fyrsta stiginu eða að sjór hafi lekið inn í slöngur.

Gangið vel um búnaðinn, þannig verður köfunin ánægjulegri og endingin meiri.

Allir sem starfa hjá Marbendli geta leiðbeint þér um umhirðu búnaðar.

← Allar greinar

WhatsApp