Divemaster er fyrsta stig atvinnuréttinda í sportköfun. Þú getur sótt um atvinnuköfunarskírteini F hjá Samgöngustofu og starfað sem leiðsögukafari. Námið er sniðið að hverjum nemanda.
Atvinnukafaranám
PADI Divemaster
Dýpi—
LengdMinnst 50 tímar (8 dagar)
Forkröfur18 ára, 40 köfur
Verð379.000 kr.
Hvað getur þú gert?
- Leitt köfun með vottuðum köfurum
- Aðstoðað við byrjenda- og framhaldsnámskeið
- Stýrt PADI Discover Scuba Diving
- Skráð þig á PADI Assistant Instructor
- Orðið hluti af PADI Pro samfélaginu
Innifalið
- PADI Divemaster Crew Pack
- PADI eLearning
- PADI skráningargjald
- Öll verkleg kennsla í laug og sjó
- Aðgangseyrir í laug og í Silfru
Ekki innifalið
- Árgjald til PADI (um 15.000 kr.)
- Akstur á köfunarstað (5.000 kr.)
Svona fer námskeiðið fram
- PADI Divemaster eLearning á netinu
- Verkleg þjálfun í laug og sjó
- Aðstoð við námskeið með kennara
Þú þarft eigin köfunartölvu, áttavita, blástursgrímu, hníf, skæri, ljós, bauju (SMB) og verkfæraveski.
Forkröfur
- 18 ára eða eldri
- 40 skráðar kafanir við upphaf, 60 við útskrift
- Skyndihjálparskírteini, yngra en 2 ára
- Vera í góðu líkamlegu formi
- Kunna að synda og líða vel í vatni
- Læknisvottorð
- Ekki vera barnshafandi