Botntími og köfunartölvur
Botntími er sá tími sem talinn er frá því að þú byrjar köfun þar til uppstig hefst.
- Hann er háður dýpi og er styttri eftir því sem kafað er dýpra.
- Botntími segir í raun hversu lengi þú mátt vera í kafi án þess að þurfa að taka sérstakt afþrýstistopp á leiðinni upp.
Heildarköfunartími er sá tími sem talinn er frá því að þú byrjar köfun þar til henni er lokið.
Botntími – dæmi
- Tölvan sýnir að á 18 metrum eigir þú 56 mínútna botntíma.
- Þú ákveður að nýta 40 mínútur.
- Þegar þú kemur upp á 10 metra sýnir köfunartölvan að þú eigir enn meira en klukkutíma eftir.
- Þetta stafar af því að köfunartölvur reikna uppsöfnun niturs (nitrogen) á raundýpi.
Tölvan veit að á 10 metrum mátt þú kafa í 219 mínútur. Að teknu tilliti til fyrri tíma reiknar hún hvað þú átt mikinn tíma eftir í heildina miðað við nýjar forsendur og gefur þér nýjan hámarksbotntíma.
Margar dýptir í sömu köfun
Köfunartölvur reikna með uppsöfnuninni þegar kafað er á mismunandi dýpi í einni köfun.
Þegar kafað er á mismunandi dýpi í sömu köfuninni skal alltaf kafa dýpst fyrst og minnka svo dýpið eftir því sem dregur á botntímann.
Botntími og öryggisstopp
Flestar köfunartölvur bjóða upp á að stilla 3 mínútna öryggisstopp á 5 metrum.
Öryggisstoppið er notað til þess að:
- „afgasa“ líkamann af nitri
- draga úr líkum á köfunarveiki
Þótt líkurnar á köfunarveiki séu litlar er gott að venja sig á öryggisstoppið. Það þarf ekki að stöðva köfunina heldur er átt við að halda sig á sama dýpi í 3 mínútur.
Nokkrir staðir hér við land hafa náttúrulegt öryggisstopp á leiðinni til baka úr köfun. Þeir eru á 5 metra dýpi og það tekur að minnsta kosti 3 mínútur að synda að landi.
Allar kafanir í PADI köfunartöflunni miðast við svokallað beint uppstig. Það þýðir að reiknað er með að hægt sé að fara upp á yfirborð á hraðanum 18 metrar á mínútu án þess að stoppa og „afgasa“ sérstaklega.
Það er þó æskilegt að taka öryggisstoppið ef kafanirnar hafa verið langar eða djúpar og botntíminn nýttur til fulls.