Fróðleikur / Eðlisfræði
Eðlisfræði · 30.1.2017

Öryggisstopp og afþrýstistopp, hver er munurinn?

Margir velta því fyrir sér hvort einhver munur sé á öryggisstoppi (safety stop) og afþrýstistoppi (deco stop).

Einfalda svarið er nei. Bæði stoppin miða að því að losa líkamann við uppsafnað nitur (nitrogen). Því minna gas sem er í líkamanum þegar upp er komið, því minni líkur á einkennum köfunarveiki.

Helsti munurinn er þó að kafara ber skylda til að taka afþrýstistopp ef kafað er fram yfir leyfilegan botntíma. Þannig getur hann komið í veg fyrir einkenni köfunarveiki.

Öryggisstopp er ekki skylda

Með því að taka þriggja mínútna stopp á fimm metrum dregur þú úr líkunum á einkennum köfunarveiki. Þetta á við um allar hefðbundnar sportkafanir.

Öryggis- og afþrýstistopp felast í því að vera á sama dýpi í ákveðinn tíma.

Köfunartölvan segir þér á hvaða dýpi þú átt að taka öryggisstopp og hversu lengi.

Reglur um öryggis- og afþrýstistopp

Ef þú ert ekki með köfunartölvu og kafar eftir köfunartöflu með botntímamæli gildir:

  • Ef farið er fram yfir leyfilegan botntíma um minna en 5 mínútur þarf að taka 8 mínútna stopp á 5 metrum. Yfirborðstími á milli kafana skal vera 6 tímar.
  • Ef farið er fram yfir leyfilegan botntíma um meira en 5 mínútur þarf að taka stopp í 15 mínútur á 5 metrum, eða eins lengi og loft dugar. Yfirborðstími á milli kafana er 24 tímar.

Flestar köfunartölvur læsast í 24 tíma í „error mode“ ef kafari nær ekki að klára stoppið af einhverjum ástæðum. Köfunartölvan er því góður mælikvarði á það hvenær hægt er að kafa aftur.

Með broti á reglum um öryggisstopp eykur kafarinn líkurnar á köfunarveiki og getur stofnað lífi sínu í hættu.

Sleppi kafari öryggisstoppi, til dæmis vegna slæms flotjafnvægis, ætti hann EKKI að fara niður aftur til að klára stoppið. Í þeim aðstæðum er betra að anda að sér hreinu súrefni, fylgjast með ástandinu og leita á bráðamóttöku ef einkenna verður vart.

Lengd og dýpt köfunar skiptir máli. Því lengri eða dýpri sem köfunin er, því meiri hætta er á einkennum köfunarveiki. Þess vegna er góð regla að taka öryggisstopp á leiðinni upp úr öllum köfunum og láta líða góðan yfirborðstíma á milli endurtekinna kafana sama daginn.

Athugið að köfunarveiki getur verið margslungin og því á ALLTAF að hafa samband við bráðamóttöku vakni grunur um að kafari sé með einkenni köfunarveiki. Því fyrr sem gripið er inn í, því meiri líkur eru á fullum bata.

Ef þú vilt vita meira um köfunarveiki mælum við með PADI Rescue námskeiðinu.

← Allar greinar

WhatsApp