Fróðleikur / Öryggi
Öryggi · 5.2.2017

Loftlaus? Rétt þjálfun skiptir máli.

Rétt þjálfun skiptir máli ef kafarinn verður loftlaus í kafi. Öll viðbrögð sem forða slysi eru rétt viðbrögð.

Mjög ólíklegt er að kafari sem fylgist vel með loftmælinum sínum verði loftlaus.

Það er þó möguleiki að búnaðurinn bili opinn og fríflæði. Fríflæði er ekki hættulegt í sjálfu sér nema lítið loft sé eftir á kútnum, kafarinn sé á miklu dýpi eða langt frá félaga sínum.

Félagaköfun miðar að því að geta tekist á við loftleysi og önnur óvænt atvik. Kafir þú eftir reglum er ólíklegt að þau komi upp. Kafari ætti aldrei að vera lengra frá félaga sínum en svo að hann geti synt til hans loftlaus.

Hvernig er hægt að fyrirbyggja óhöpp og slys vegna loftleysis?

Plana köfunina og kafa planið.

  • Ekki eru miklar líkur á því að kafari verði loftlaus ef hann planar þá vegalengd sem á að fara miðað við loftnotkun
  • Reglan um að nota 1/3 lofts á leið út, 1/3 lofts á leið heim og 1/3 lofts til vara er góð regla

Fyrir köfun:

  • Ræða hvernig við ætlum að bregðast við óvæntum aðstæðum, þar með talið loftleysi
  • Vera aldrei lengra frá félaganum í kafi en sem nemur 10 sekúndna sundi

Ef kafarinn verður loftlaus þrátt fyrir gott köfunarplan er hægt að:

  • Fá loft hjá félaganum úr varalunga (eða aðallunga ef uppsetning á köfunarbúnaði er þannig)
  • Fara upp á yfirborð í hefðbundnu uppstigi, 18 metrar á mínútu, með varalunga frá félaganum
  • Fara upp á yfirborð í CESA (Controlled Emergency Swimming Ascent) ef með þarf. MUNA að gefa frá sér „Ahh“ hljóð á leiðinni upp.

Það er líka hægt að deila aðallunga fyrir þá sem hafa æft það.

  • Fá loft hjá félaganum úr hans aðallunga
  • Þú tekur tvo andardrætti og hann tvo, til skiptis
  • Muna að anda frá sér á leið upp á yfirborð
  • Hefðbundið uppstig, 18 metrar á mínútu

Þessi aðferð getur átt við ef í ljós kemur í kafi að varalungað er bilað. Aðferðin er erfið og oft ekki á færi annarra en vel þjálfaðra og samstíga kafara.

Varalungað ætti ekki að vera bilað því „buddy check“ miðar að því að skoða búnaðinn fyrir köfun. Hættið við köfun ef búnaður er ekki í lagi – alltaf!

Upp á yfirborð í CESA (Controlled Emergency Swimming Ascent)

  • Nauðsynlegt er að gefa frá sér hljóð á leiðinni upp (Ahhhhh … eins og óperusöngvari).
  • Ef haldið er í sér andanum myndast lungnaþan og rof á lungnablöðrum. Það getur valdið varanlegum skemmdum.
  • Þegar farið er upp í CESA er best að hafa lungað uppi í sér. Mögulega er enn einn „sopi“ af lofti á kútnum þegar ofar er komið.
  • Þegar farið er upp í CESA þarf að blása með munninum í vestið á yfirborðinu til þess að ná flotjafnvægi.
  • Mögulega þarf að losa sig við blý á leið upp eða þegar upp er komið.
  • Ef farið er upp á þennan hátt er mikilvægt að fylgjast með einkennum köfunarveiki. Hafið samband við bráðamóttöku í síma 112 ef bera fer á einkennum.

Farið er í viðbrögð við loftleysi á PADI Open Water byrjendanámskeiðinu.

← Allar greinar

WhatsApp