Fróðleikur / Öryggi
Öryggi · 5.2.2017

Fríflæði í öndunarbúnaði, hvað er til ráða?

Ef öndunarbúnaður bilar þá bilar hann oftast opinn. Það verður fríflæði lofts.

Fríflæðið getur myndast:

  • í fyrsta stiginu, þrýstijafnaranum
  • í öðru stiginu, aðal- eða varalunga

Fríflæði í öndunarbúnaði er ekki hættulegt ef kafari kann að bregðast við því.

Flest lungu er hægt að hafa uppi í sér áfram þótt þau fríflæði. Undantekning eru Poseidon lungu sem eru með meiri þrýstingi á slöngunum. Það er ekki gott að hafa þau uppi í sér ef þau fríflæða. Með þau þarf að halda lunganu við munninn og taka loft í „sopum“.

En hvers vegna fríflæða lungun?

  • Þau geta verið vanstillt og þarfnast þjónustu
  • Þau henta ekki við íslenskar aðstæður og ís myndast inni í þeim
  • Sandur eða önnur óhreinindi hindra lokun
  • Kafarinn andar of hratt og ís myndast
  • Munnstykkið snýr upp á lunganu, til dæmis þegar hoppað er út í (varalunga)

Fleiri ástæður geta einnig orsakað fríflæði svo sem bilaðir O-hringir.

Hvað er til ráða ef það fríflæðir í miðri köfun?

Nýliðar í köfun:

  • Láta félagann vita. Enda köfunina og fara upp á yfirborð í eðlilegu uppstigi á hraðanum 18 metrar á mínútu eða hægar. Munið að fylgjast að á leiðinni upp. Setja loft í vestið uppi á yfirborði. Skrúfa fyrir kút.
  • Fá lánað varalunga hjá félaganum. Enda köfunina í eðlilegu uppstigi á hraðanum 18 metrar á mínútu eða hægar. Skrúfa fyrir kút þegar búið er að ná flotjafnvægi á yfirborði.

Vanir kafarar:

  • Fá lánað varalunga hjá félaganum. Skrúfa fyrir kút neðansjávar. Bíða í 20–40 sekúndur. Opna þá fyrir aftur. Oftast er þá hætt að fríflæða. Athugið að ef skrúfað er fyrir kútinn er ekki hægt að setja loft í galla. Mikilvægt er að vera í góðu flotjafnvægi. Kanna loftbirgðir. Ljúka köfun ef loft er ekki nægilegt til þess að halda áfram.

Ef öndunarbúnaður er ítrekað að fríflæða í köfun þá er best að láta þjónustuaðila stilla hann og yfirfara. Vel stilltur búnaður sem gerður er fyrir íslenskar aðstæður á ekki að fríflæða, jafnvel þótt sjórinn eða vatnið sé ekki nema núll °C.

Mikilvægt er að velja öndunarbúnað sem hentar hér við land.

Fríflæði öndunarbúnaðar er æft á PADI Open Water byrjendanámskeiðinu.

← Allar greinar

WhatsApp