- This event has passed.
Þurrgallaréttind
22/03/2018 - 31/08/2018
Kr. 59.900Dry Suit Specialty
Þurrgallanámskeiðið hentar vel þeim sem hafa lært köfun í heitum sjó í blautgalla.
Nemendur fá upprifjun á PADI Open Water ef þeir óska eftir því. Áhersla er á að nemendur læri góða flotjöfnun í þurrgalla og geti stýrt upp og niðurstigi. Öryggisstopp er æft.
Þurrgallanámskeið er kennt allt árið.
Verð: kr. 59.900 – Skráning hér á þurrgallanámskeið
Hvað get ég gert með þurrgallaréttindi?
- Réttindin eru samþykkt af öllum viðurkenndum köfunarmiðstöðvum í heiminum
- Þú getur kafað í Silfru
- Skráð þig á PADI Advanced Open Water framhaldsnámskeið
- Skráð þig á önnur PADI Specialty námskeið
- Tekið þátt í köfunarferðum með Sportkafarafélagi Íslands (að því gefnu að þú gangir í félagið)
Innifalið í verði á þurrgallanámskeiði er:
- Kennsla
- PADI skírteini
- Leiga á köfunarbúnaði á kennsludögum
Ekki innifalið í verði:
- Akstur á köfunarstað
Skráning á þurrgallanámskeið
- Námskeiðsgjald er ekki endurgreitt ef nemandi ákveður að hætta á námskeiðinu