Með Nitrox réttindi getur þú lengt hámarks botntíma þinn í kafi.
Réttindin eru samþykkt af öllum viðurkenndum köfunarmiðstöðvum í heiminum
Þú getur fengið Nitrox áfyllingu á kútana þína
Minni yfirborðsbiðtími er á milli kafanna
Lengri botntími
Minna þreytt/ur eftir kafanir
Getur skráð þig á PADI Emergency Oxigen Provider námskeiðið okkar
Kafað með Nitrox í Sidemount uppsetningu kúta.
Með Nitrox réttindum getur þú fengið súrefnisríkara loft pressað á kútinn þinn. Þannig getur þú hægt á mettun og lengt botntíma í köfun.
Nánar um námskeiðið
Verð námskeiðs er kr. 22.500.- einungis bóklegt nám nægir
Verð námskeiðs er kr. 44.900.- með köfun með kennara
Greitt er fyrir námskeið við skráningu.
Innifalið í verði er:
Kennslugögn á netinu
Köfun (ef valið er með köfun)
PADI skírteini
Ekki innifalið í verði:
Akstur á köfunarstað (5.000 á mann)
Leiga á köfunarbúnaði (15.000)
ATH!
Námskeiðsgjald er ekki endurgreitt ákveði nemandi að ljúka ekki námskeiði.
Til að skrá sig á þetta námskeið eða fá meiri upplýsingar sendir þú póst á marbendill@marbendill.is
Einnig hægt að fá meiri upplýsingar í síma 8597220
Fyrirkomulag
Nemendur greiða námskeiðsgjald og fá afhent kennslugögn.
Námskeiðið er eingöngu bóklegt en hægt er að bæta við köfun með kennara gegn greiðslu.
Heildartími námskeiðs er um 18 tímar með heimalærdómi.
Forkröfur
Ef þú ert í einhverjum vafa hvort þú uppfyllir skilyrði til köfunarnáms hafðu þá samband við okkur áður en þú greiðir fyrir námskeið.
Hægt er að taka þetta námskeið samhliða öllum okkar námskeiðum líka byrjendanámskeiði
Ef byrjendanámskeið er tekið samhliða þá er skírteini gefið út eftir að PADI Open Water skírteini er gefið út
Fylla út PADI heilsufarsyfirlýsingu við skráningu eða skila læknisvottorði
Námsefni
Allt námsefni PADI er á netinu og á ensku og fleiri tungumálum, ekki á íslensku
Marbendill köfunarskóli leggur áherslu á aðgengi námsefnis fyrir alla nemendur