- This event has passed.
Framhaldsnámskeið
22/03/2018 - 31/10/2018
Kr. 99.900Framhaldsnámskeið gefur þér PADI Advanced Open Water réttindi niður á 30 metra
Framhaldsnámskeið í köfun er bæði skemmtilegt og krefjandi. Best er að skrá sig með að minnsta kosti 5 daga fyrirvara. Þú færð sendan hlekk á bóklegan hluta PADI Advanced Open Water e-Learning. Þú klárar bóklegan hluta áður en verklegur hluti hefst.
Skráning á framhaldsnámskeið
Hvenær og hvar á að mæta á framhaldsnámskeið?
Sett upp í samráði við nemendur. Gert er ráð fyrir að nemendur taki 2 kafanir á fyrri og seinni köfunardegi og eina köfun á þriðja köfunardegi.
Hvað get ég gert með köfunarréttindi?
- Réttindin eru samþykkt af öllum viðurkenndum köfunarmiðstöðvum í heiminum
- Þú getur því fengið leigðan köfunarbúnað
- Fengið áfyllingu á köfunarloftkúta
Athugið að best er að skrá sig um viku fyrir auglýst námskeið. Þannig næst góður tími til að lesa og gera verkefni í PADI e-Learning á netinu.
Innifalið í verði á framhaldsnámskeiði er:
- Kennslugögn
- Kennsla
- PADI skírteini
Ekki innifalið í verði:
- Leiga á búnaði. Nemendur sem þurfa á búnaði að halda fá hann á góðum leigukjörum
- Akstur á köfunarstað